27.5.2010 | 12:17
Fegrum bæinn okkar
Víkin kæra, Víkin mín,
við þig hef ég tryggðir bundið,
hafið fríða, fjöllin þín,
fegurst þegar kvöldsól skín.
Þetta eru fyrstu línurnar í ljóði eftir Ágúst Vigfússon kennara.
Bolungarvík stendur á afar fallegu bæjarstæði, við ysta haf á milli brattra fjalla og djúpra dala. Í mörg ár var talað um að Bolungarvík væri með fallegustu og snyrtilegustu bæjum landsins og þannig viljum við auðvitað hafa það. Margir muna þau umskipti í bænum, þegar gangstéttir voru lagðar og á allar götur bæjarins var lagt bundið slitlag. Hverju sem um er að kenna þá verður ekki annað sagt en, að heldur hefur hallað undan fæti í þeim efnum og er nauðsynlegt að hefja stórátak til að snúa þessari þróun við.
Ef D-listinn fær einhverju ráðið eftir kosningar, verður ráðist í átak með aðstoð bæjarbúa og fyrirtækja til að fegra og snyrta bæinn okkar. Á næstu árum, m.a vegna opnunar Bolungarvíkurganga, er líklegt að ferðamönnum muni fjölga og því brýnt að markaðssetja Bolungarvík sem áhugaverðan ferðamannastað og gera nauðsynlegar ráðstafanir til að taka á móti ferðamönnum og gera þeim kleift að ganga að afþreyingu og allri nauðsynlegri þjónustu.
Við eigum frábært tjaldsvæði á besta stað í bænum, með afar skemmtilegri umgjörð frá náttúrunnar hendi, sem nauðsynlegt er að stækka og bæta. Í stað þess að byggja dýrt þjónustuhús á meðan fjárhagurinn er ekki betri en hann er, er hægt að nýta betur þá aðstöðu sem er í Íþróttamiðstöðinni Árbæ.
Góð aðstaða er fyrir golfiðkun og hefur Golfklúbburinn af miklum rausnarskap byggt góða aðstöðu í Syðridal og er völlurinn meðal þeirra skemmtilegustu og bestu á landinu. Einnig er aðstaða til knattspyrnuiðkunar á Skeiði góð og á æfingarvöllum þar hjá og hefur U.M.F.B. unnið mikið og gott starf við að halda utan um margs konar íþróttastarfsemi í bænum.
Íþróttamiðstöðin Árbær gegnir mikilvægu hlutverki í tilveru Bolvíkinga og nýlega hefur sundlaugargarðurinn verið endurbættur á skemmtilegan hátt og til að ljúka þeirri framkvæmd þarf að endurgera vaðlaugina. Sú framkvæmd er okkur á D-listanum ofarlega í huga en taka verður mið af fjárhagslegri getu sveitarfélagsins varðandi þá framkvæmd.
Í Bolungarvík er þó nokkuð af opnum skemmtilegum svæðum, þar sem komið hefur verið fyrir leiktækjum, golfþrautum og fleiru. Þar viljum við taka til hendinni og auka viðhald þeirra, endurnýja og bæta við á fleiri svæðum.
Laugardaginn 29. maí verður gengið til bæjarstjórnarkosninga og skorar D-listinn á bæjarbúa að veita honum brautargengi, til að hefja Bolungarvík til vegs og virðingar nú sem aldrei fyrr og koma bænum okkar aftur í hóp fegurstu og skemmtilegustu bæja á Íslandi.
Víðir Benediktsson vélvirki
Skipar fimmta sæti á D lista í Bolungarvík.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.5.2010 | 12:04
Kynning frambjóðenda: Ólafur Kristjánsson - 14.sæti
Ólafur Kristjánsson fyrrverandi bæjarstjóri í Bolungarvík vermir heiðursætið á lista Sjálfstæðismanna og óháðra í Bolungarvík eða það 14. Hann er kvæntur Herdísi Ágústu Eggertsdóttur og börnin eru Kristján B., Davíð S., og Edda Borg, og eiga þau hjón sjö barnabörn þegar allt er talið. Ólafur er ellilífeyrisþegi og léttadrengur hjá Lillý um þessar mundir. Ábyrg fjármálastjórn eru helstu áhersluefni er kemur að stjórn bæjarins.Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.5.2010 | 23:21
Kynning frambjóðenda: Sigurgeir S. Þórarinsson - 13. sæti
Sigurgeir S. Þórarinsson skipar 13. sæti á lista Sjálfstæðismanna og óháðra í Bolungarvík. Hann er kvæntur Ragnhildi Stefánsdóttur og á fimm börn. Sigurgeir er harður stuðningsmaður Newcastel United og horfir gjarnan með athygli á liðið sitt skjóta í mark. Sigurgeir eða Geiri eins og hann er gjarnan nefndur, leggur ofurkapp á það að leiðarljósi að fjármál bæjarins séu í góðu lagi.Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.5.2010 | 14:00
Laugardagur 29. maí - kjördagur
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.5.2010 | 13:59
Föstudagur 28. maí
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.5.2010 | 13:57
Fimmtudagur 27. maí
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.5.2010 | 13:57
Miðvikudagur 26. maí
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.5.2010 | 22:50
Dulin forræðishyggja
Nú er enn eitt kjörtímabilið senn á enda og má segja að það hafi verið viðburðarríkt í meira lagi. Við, sem skipuðum A – lista, Afl til áhrifa við síðustu sveitastjórnarkosningar í Bolungarvík, höfum verið í meirihlutasamstarfi við tvö stjórnmálaöfl á kjörtímabilinu og geri aðrir betur! Eins og alþjóð er kunnugt, leystist fyrra samstarfið við K-lista, Bæjarmálafélags Bolungarvíkur upp í apríl 2008 og í kjölfarið mynduðu A- listi og D-listi Sjálfstæðisflokks meirihluta sem starfað hefur með miklum ágætum út kjörtímabilið. Svo vel hefur samstarfið gengið að ákveðið var að stíga skrefið til fulls og bjóða fram einn lista undir merkjum Sjálfstæðismanna og óháðra og gefa þannig fleirum, sem telja sig vera óháða, tilefni til að ganga í hópinn.
Á þeim rúmlega tveimur árum sem liðin eru síðan upp úr samstarfi A-lista og K-lista slitnaði hafa fulltrúar Bæjarmálafélags Bolungarvíkur sífellt klifað á „mistökum“ A-listans en benda verður á að sá árangur sem núverandi meirihluti hefur náð í viðsnúningi á rekstri sveitarfélagsins í samstarfi við Eftirlitisnefnd með fjármálum sveitarfélaga, sýnir svart á hvítu að ákvörðun okkar var rétt og tekin með hagsmuni bæjarfélagsins að leiðarljósi.
Um hvað snúast kosningarnar?
En nóg um fortíðina, nú þarf að horfa fram á við. Kosningar snúast fyrst og fremst um fólk og málefni. Þegar stefnuskrár D-lista Sjálfstæðismanna og óháðra annars vegar og K-lista Bæjarmálafélag Bolungarvíkur hins vegar eru skoðaðar kemur í ljós að það er grundvallarmunur á þeim.
Stefnuskrá D-lista Sjálfstæðismanna og óháðra er samfélagslega miðuð, þ.e. sá ávinningur sem hlýst af góðum rekstri og lækkun skulda verður notaður í þágu bæjarbúa. Hún er raunsæ því menn átta sig á, að til þess að geta boðið bæjarbúum betri þjónustu og að mögulegt verði að fara í framkvæmdir verða fjármál sveitarfélagsins að vera í lagi. Einungis þannig getum við byggt betri bæ.
Í formála stefnuskrár Bæjarmálafélags Bolungarvíkur sem skrifaður er af Katli Elíassyni, kemur fram að Bæjarmálafélagið kennir sig við félagshyggju. Því trúði ég ekki mínum eigin augum þegar ég las fyrsta stefnumál K-lista en það er að ráða eigi framkvæmdastjóra fyrir sveitarfélagið. Ástæðan fyrir undrun minni er sú að framkvæmdastjórar eru ráðnir við fyrirtæki, sveitarfélög ráða sveitar- eða bæjarstjóra og stofnanir ráða sér forstöðumenn. Er bæjarfélagið því, í augum K-listans, fyrirtæki sem hefði það að markmiði að skila arði og hefði því enga samfélagslega ábyrgð?
Munurinn á því að ráða framkvæmdarstjóra og bæjarstjóra er því mikill. Bæjarstjóri stýrir bæjarfélagi í þágu allra bæjarbúa, framkvæmdarstjóri stýrir fyrirtæki sem skila á fjárhagslegum arði, óháð heildinni. Það eru því misvísandi skilaboð sem K-listinn ber fyrir bæjarbúa og viti menn ekki hvoru megin hryggjar þeir standa, þá er erfitt að sjá hvernig þeir geti stýrt heilu bæjarfélagi.
Annað sem sló mig við lestur stefnuskrárinnar er hversu gífurleg forræðishyggja einkennir hana. K-listinn, Bæjarmálafélag Bolungarvíkur ætlar ekki einungis að halda fasta fundi með forstöðumönnum stofnana bæjarfélagsins þar sem þeir eiga að gera grein fyrir sínum störfum, heldur á einnig að kalla til eigendur einkafyrirtækja í bænum til að tryggja að þeir viti nú hvað þeim sé fyrir bestu en átta sig ekki á því að um eru að ræða einkafyrirtæki sem ber engin skylda til að ræða við bæjarfélagið.
Stefnuskrá K-lista, Bæjarmálafélags Bolungarvíkur, er full af misvísandi skilaboðum. Þau gildi sem K-listinn segist standa fyrir, s.s. traust, lýðræði, gagnsæi og heiðarleiki verða hrein öfugmæli þegar farið er yfir gjörðir og bókanir bæjarfulltrúa K-listans síðustu ára, sérstaklega þær er lúta að samstarfinu við Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga en oftar en ekki hafa bæjarfulltrúarnir lýst andstöðu við framgang samstarfsins.
Að framansögðu ættu Bolvíkingar ekki að vera haldnir valkvíða þann 29. maí. Setjum X við D á kjördag og tryggjum að Sjálfstæðismenn og óháðir fái að halda áfram því góða starfi sem einkennt hefur tvö síðustu ár þessa kjörtímabils sem senn er úti.
Anna Guðrún Edvardsdóttir er bæjarfulltrúi og skipar 2. sæti á D-lista Sjálfstæðismanna og óháðra í Bolungarvík
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.5.2010 | 22:43
Kynning frambjóðenda: Þóranna Þórarinsdóttir - 12. sæti
Þóranna Þórarinsdóttir skipar 12. sæti á lista Sjálfstæðismanna og óháðra í Bolungarvík en kosið verður laugardaginn 29. maí næstkomandi. Þóranna er í sambúð með Ólafi Ragnari Hjálmarssyni og eiga þau tvo syni, þá Arnar Frey og Ágúst Atla. Hún er skrifstofumaður hjá Birni ehf. og hefur verið sjóari bæði á netaveiðum og færum. Þórönnu finnst gaman að spila, púsla og veiða og þykir fiskinn með afbrigðum og einkar heppin í spilum enda venjulega með tromp á hendi. Henni leggur áherslu á ábyrga fjármálastjórn í bæjarfélaginu og eru leikskóla- grunnskóla- æskulýðs- og heilbrigðismál í brennidepli hjá Þórönnu.Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.5.2010 | 22:33
Kynning frambjóðenda: Hafþór Gunnarsson - 11. sæti
Hafþór Gunnarsson vermir 11.sætið á lista Sjálfstæðismanna og óháðra í Bolungarvík. Hann er í sambúð með Guðbjörgu Hjartardóttur og á hann þrjár dætur, fimm stjúpbörn og nokkur barnabörn. Hafþór er pípulagningameistari og fréttaritari með meiru og flytur jákvæðar fréttir af svæðinu eins oft og þurfa þykir. Hafþór hefur gaman af útiveru og skotveiði og eru hans helstu áherslumál skóla- atvinnu- og íþróttamál auk þess ber hann velferð bæjarins fyrir brjósti.Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
D-listi sjálfstæðismanna og óháðra í Bolungarvík
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.5.): 0
- Sl. sólarhring: 0
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 2869
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar


![Olafur[1]](/img/tncache/s100/67/d-listinn/img/olafur_1.jpg)
![Geiri[1]](/img/tncache/s100/67/d-listinn/img/geiri_1_994548.jpg)

![Þoranna[1]](/img/tncache/s100/67/d-listinn/img/_oranna_1.jpg)
![Hafthor[1]](/img/tncache/s100/67/d-listinn/img/hafthor_1.jpg)